Ásgarður
Ásgarður er byggður árið 1906 af Ásgeiri Jónassyni, syni Jónasar borgara í Hrútsstaða-Norðurkoti.
Ásgarður er byggður árið 1906 af Ásgeiri Jónassyni, syni Jónasar borgara í Hrútsstaða-Norðurkoti.
Ártún 2 voru byggð 1898 af Gústaf Árnasyni trésmið, er hann seldi bæ sinn í Beinateig. Gústaf fluttist til Stykkishólms. Nafnið Ártún kemur síðast fyrir 1903. Hús þetta var stundum kallað Gústafshús. Gunnar í Götu keypti það og bjó þar nokkur ár og flutti það svo upp að Lölukoti, en þaðan var það flutt að
Ártún 1 voru byggð árið 1891 hjá Garðbæ í Beinateigshverfinu af Gústaf Árnasyni trésmið frá Ártúnum á Rangárvöllum. Árið 1898 seldi hann bæinn Brynjólfi Gunnarssyni, er þar bjó lengi síðan og kallaði hann Traðarhús, sjá þar.
Árnatóft er talin kennd við Árna nokkurn austan úr Bæjarhrepp, er hafi fengið að stunda silungsveiði í Traðarholtsvatni og gerði sér kofa við vatnið til skýlis. Árið 1859 fekk Sigurður Sigurðsson, síðar í Hraukhlöðu, leyfi til þess að gera sér þarna býli. Stóð þá enn tóftin af kofa Árna, og refti Sigurður yfir hana, og
Alþýðuhús var byggt 1939 af verkamannafélaginu .,Bjarma“ og var samkomuhús þess. Það er nú eign hreppsins, notað sem áhaldahús og slökkvistöð.
Aldarminni er byggt árið 1901 af Einari Jónssyni, áður bónda í Götu. og Guðlaugi Skúlasyni, síðar bónda í Sírnonarhúsum. Jón Sigurðsson, sem keypti af Guðlaugi og bjó þar lengi, stækkaði húsið nokkuð.
Akbraut er byggð árið 1920 af Jóni Kristjánssyni, bróðursyni Magnúsar Teitssonar. Jón fluttist til Reykjavíkur og dó þar.
Aftanköld var upphaflega skemma, er Jón Adólfsson í Grímsfjósum byggði aftan við bæinn á Stokkseyri á árunum 1860-65. þá er hann fór að verzla, sem stóð þó skamma hríð. Nafnið var dregið af staðsetning skemmunnar og því, að húsið þótti kalt. Það kemur fyrst fyrir við húsvitjun árið 1884, og bjó þar þá og lengi
Aðalsteinn er byggður 1910 af Guðmundi Guðmundssyni, síðast í Brautartungu. Þetta er annað af fyrstu tveim steinhúsunum, sem byggð voru á Stokkseyri. Hitt var Hafsteinn, er byggður var sama ár.
Adólfshús er kennt við Adólf Adólfsson á Stokkseyri. Talið er, að hann hafi byggt hús þetta árið, sem hann sleppti ábúðinni á Stokkseyri, þ. e. 1889, og víst er um það, að hús Adólfs var hið eina þar í hverfinu. sem skattskylt var árið 1890.